Skilmálar

Skilmálar / Terms

Kaupskilmálar

Eftirgreint eru skilmálar fyrir kaup á vörum á vefsvæðinu www.enzyme.is. Eigandi þess og seljandi netverslunarinnar er Ozon ehf, Hamraborg 1, 200 Kópavogi. Með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin teljast skilmálarnir samþykktir af kaupanda. Með öll viðskipti er farið sem trúnaðarmál af hálfu Ozon og áhersla lögð á eins örugg viðskipti á netinu og frekast er unnt. Kaupendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

 

Afhending vöru

Allar vörur eru afgreiddar frá Ozon í síðasta lagi á næsta virka degi eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Að öllu jöfnu er pöntunum dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Afhendingartími er þá að jafnaði 2-3 dagar eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi. Ozon ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða í flutningi þriðja aðila. Verði vara fyrir skemmdum eftir að hún er send frá Ozon til viðkomandi er tjónið á ábyrgð Íslandspósts og/eða kaupanda.

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga frá móttöku vörunnar til að hætta við kaupin að því tilskildu að henni sé skilað í óuppteknum og óskemmdum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með endurgreiðslukröfu. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd nema ef vara reynist gölluð eða ekki afgreidd í samræmi við pöntun. Vinsamlegast hafið samband við Ozon með frekari spurningar að þessu lútandi.

 

Verð og greiðslufyrirkomulag

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Ozon áskilur sér rétt til að hætta við afgreiðslu pantana, t.d. vegna mistaka við birtingu verðupplýsinga, og einnig til að breyta verðum eða hætta með tilteknar vörutegundir fyrirvaralaust. Verð er í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Bæði er hægt að greiða með greiðslukortum eða með millifærslu inn á bankareikning Ozon, 0318-26-2144, kt. 550385-0159. Viðskipti með greiðslukortum fara í gegnum öryggisgáttir Kortaþjónustunnar. Áskilinn er réttur til að óska staðfestingar pantana símleiðis og sömuleiðis til að tilkynna kaupanda um mögulegar verðbreytingar á pöntun hans vegna innsláttarvillu eða mistaka í verðútreikningum.

 

Sendingarkostnaður

Sé pakki sendur á pósthús eða í póstbox bætist 790 króna sendingarkostnaður við vöruverðið. Sé hann sendur á heimilisfang kaupanda er kostnaðurinn 1.490 krónur. Ef andvirði stakrar pöntunar nær 20.000 krónum er sendingargjald fellt niður.

 

Varnarþing

Þessir skilmálar eru í takti við lög og regluverk á Íslandi. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

 

 

-----------------------------

 

Terms and Conditions

Below is a short retelling, but not verbatim translation, of the terms published here in Icelandic.

 

General

Ozon ehf (Ozon wholesale company) reserves the right to cancel orders, to change prices and to change product types being sold, without notice. Orders can be confirmed by phone.

 

Product delivery

All orders are processed the next working day. If the product is not available or in stock, a service representative will be in contact with you and announce an estimated delivery time. Orders are mainly delivered by Íslandspóstur and their delivery, transportation and insurance terms apply to the delivery. Ozon is thereby not responsible for damage during delivery. Íslandspóstur and/or the buyer is responsible for damage during transportation from Ozon to the buyer.

 

Cancellation right / right to return and refund

The buyer has 14 days to cancel a purchase, as long as he has not used the product and the product is returned in unopened packages and in good order. If the product was in sealed packages, the seal must not be broken. The cancellation period starts when the product has been delivered to the receiver. The invoice for the product has to be included in the return. Refund is made in full if the above conditions are met and after the product has been returned. Delivery charges are not refunded. Please contact Ozon for questions.

 

Price

Please notice that the price on the internet can change without notice.

All prices on the website are including VAT and invoices are issued with VAT.

 

Confidentiality

The seller holds all information from the buyer in relation to the purchase as confidential. Under no circumstances will information be handed to a third party.